Thursday, August 24, 2006

NÝTT BLOGG

Allt í plati, ég nenni ekki að blogga. Allavegana ekki mikið.

Sumarið var svna:

Ég fór í frí og gerði ekki neitt.
Ég fór til útlanda og fór á tónleika í útlöndum, geðveikt.
Ég kom heim.
Fór að vinna.
Vann.
Vann meira.
Svo byrjaði skólinn.
Og núna er ég í skólanum.

Fökking awesome.

Svo eru hérna niðurstöður úr mestu awesome könnun ever:


You scored as Michaelangelo. You have fun in life, but sometimes you goof around so much that its hard to take you seriously. But your good sense of humor and ability to lighten things up are good qualities to have!

Michaelangelo


89%

Donatello


43%

Raphael


36%

April O'Neil


32%

Leonardo


21%

Mater Splinter (The Rat)


14%

Which teenage mutant ninja turtle are you?
created with QuizFarm.com

Monday, May 15, 2006

No hay moros en la costa

Ég er í pásu. Pásu frá því að læra spænsku. Seinasta skiptið sem ég þarf að læra spænsku (ef ég næ). Það er geðveikt.

Á morgun verð ég kominn í sumarfrí, og þetta verður án efa frábært sumarfrí. Vegna þess að ég fæ í alvörunni frí, ég verð ekkert að vinna frá 10. júli til 28. júlí, þar sem að leikskólinn er lokaður þá (lokaður frá 10. júlí til 8. ágúst, en ég fer til útlands 28. júlí og kem heim 8. ágúst). Á morgun verður stuð, þar sem það er afmæli og lokaball, jibbíjeij.

Annars er mest lítið að frétta, helvítis próf endalaust bara, en þau eru að klárast á morgun. En ég ætla að leggja spurning fyrir fólk, eins og allir sem eitthvað þekkja mig vita, þá hef ég mikla unun afþví að læra stærðfræði og eðlisfræði og mest allt sem tengist reikningi. Nú vil ég spurja þig kæri lesandi, er stærðfræði/eðlisfræði/raungreinar yfir höfuð tilgangslausar (Fínt væri að fá einhver rök ef einhver sammála þessari fáránlegu alhæfingu)? Ég nefnilega heyrði einhvern kauða vera að segja þetta um daginn, greyið átti í erfiðleikum með algebru.

Sunday, April 30, 2006

Nýtt tattú?

Jæja, ég er að pæla í að fá mér nýtt tattú, en ég er bara alls ekki viss hvernig tattú ég ætla að fá mér eða hvort ég geri það yfir höfuð.



Þetta er ótrúlega flott að mínu mati, en ef ég myndi útskýra hvað þetta væri, myndi fólk strax hætta að tala við mig. Þetta er sum sé J.R.R.T. eða John Ronald Reul Tolkien, s.s. skammstöfun Tolkiens, sem hann notaði alltaf. Notaði t.d. þetta í bókinni the Hobbit sem merkið sem Gandalf setti á hurð Bilbo.



Svo er það þetta, þetta er líka Tolkien tengt, heldur sig í dreka þemanu lika. Þetta er Smaug, drekinn úr the Hobbit, þessi mynd af af kortinu sem Tolkien teiknaði fyrir the Hobbit af the Lonely Mountain.

Þetta er eina sem ég hef fundið og lýst eitthvað á, væri náttúrulega klassi að tattúa pí á sig eða eitthvað því um líkt.





Annars ætla ég að biðja þig, lesandi góður, að annað hvort dæma þessi 2 tattú eða koma með hugmyndir að einhverju öðru.

Wednesday, April 26, 2006

Ninjur, Sjóræningjar og Kúrekar

Jújú, þessar þrjár steríótýpur af vonduköllum eru án efa mínar uppáhálds af þeim öllum.

Þær hafa það allt,
Ninjur eru gaurar sem eru alltaf svartklæddir, sést aldrei framan í þá, blekkingar og ruglingur (confusion) eru þeirra bestu vinir og eru bara hreinlega svalastir af þeim öllum, enda voru Törtles ninjur. Bendi á síðuna The Official Ninja Webpage: REAL Ultimate power! til leiðsagnar um það hvernig þú átt að verða alvöru ninja.




Sjóræningar eru alltaf fullir, þeir syngja geðveikt mikið og eru alltaf svalir á meðan þeir eru að því. Þeir eru með byssur, þeir eru með sverð, þeir eru með romm og síðast en ekki síst eru þeir með officially svalasta vondukalla logo í heimi (sjá mynd). Pabbi Línu Langsokk var sjóræningi, og Lína er sterkasta stelpa í heimi (meina, hún gat lyft hestinum sínum?), svo að sjóræningjar eru greinilega gæðablóð (blóðbankinn?). Svo vil ég minna alla á Talk like a Pirate day sem er haldinn hátíðlegur á ári hverju.




Síðast en ekki síst (jú eiginlega, ég og Sölvi komumst að þeirri niðurstöðu að kúrekar eru eiginlega ekkert kúl, ég meina -reki...) kúrekar.



Nema ef að þeir ræna lestir og eru alltaf með svona klút fyrir munninum, og þeir verða helst að heita Eitthvað Dalton (eins og í Lukku Láka).

Sunday, April 23, 2006

Hæhó og jibbí jeij?

Bloggið er komið aftur upp? Jeij?

Ég ætla að gera aðra tilraun við að blogga, eða að minnsta kosti þykjast blogga.

Fyrsta "í plati" bloggið:

Ég ætla að sanna að 1=2

Okey, gerum ráð fyrir að a=1, og að a=b, segjum svo að:

a^2 = ab
a^2 - b^2 = ab - b^2
(a+b)(a-b) = b(a-b)
a+b = b
2a = a
2 = 1

Ha? er 2 = 1? Ha? er þá 1+1=3? eða jafnvel 4?






ALLT Í PLATI!